Í hjarta Brúarárbyggðar rísa nú glæsileg og fullbúin heilsárshús frá Nordroof. Fyrstu húsin verða afhend í september 2025, fullbúin með vönduðum innréttingum, húsgögnum og viðarverönd. Hér geturðu kynnt þér hvert hús nánar – með teikningum, skipulagi og myndum sem sýna lífsstílinn sem bíður þín.
Ártún 13
79 m²
Ártún 13
79 m²
Heilsárshús á einni hæð með þremur svefnherbergjum, björtu alrými og grágrænni klæðningu. Viðarpallur við stofu og inngang.
Í Reykjaskógi færðu meira en bara sumarhús – þú færð sveigjanleika til að móta draumaathvarfið þitt. Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval einingahúsa í samstarfi við Nordroof. Þú getur valið úr vinsælum tilbúnum teikningum eða hannað þína eigin útfærslu.
Nýtt og spennandi hverfi í Reykjaskógi
Í hjarta Gullna hringsins, aðeins klukkutíma frá Reykjavík, er að rísa einstakt hverfi. Hér vaknar þú við fuglasöng, með stórbrotið útsýni yfir fjallahringinn og Heklu í fjarska.
Hverfið er innan öryggishliðs og býður upp á öruggt og friðsælt umhverfi fyrir fjölskylduna. Hér er hitaveita, neysluvatn og fastur snjómokstur sem gerir dvölina þægilega allt árið um kring.
Í nágrenninu finnur þú allt sem gerir lífið ljúft – veitingastaði, verslanir, sundlaugar, náttúrulaugar og óteljandi afþreyingarmöguleika. Stutt er í helstu náttúruperlur landsins eins og Geysi, Gullfoss og Þingvelli, auk þess sem falleg gönguleið liggur frá hverfinu að Brúarfossi.
Brúarárbyggð er ekki bara staður fyrir sumarhús – þetta er nýtt samfélag sem býður upp á lífsgæði allan ársins hring og samverustundir sem endast.
Staðsetning
Algengar spurningar
Já. Við bjóðum bæði upp á staðlaðar útfærslur í mismunandi stærðum og möguleikann að sérsníða húsið eftir þínum þörfum.
Staðlaðar útfærslur eru frá 79,7 m² upp í 116,5 m², allar á einni hæð með góðum viðarpöllum. Að auki er hægt að hanna sérsniðna lausn sem getur verið minni eða stærri, eftir óskum kaupanda.
Húsin eru afhent fullbúin að innan og utan. Það þýðir að þau koma með innréttingum, gólfefnum, helstu húsgögnum, fataskápum og viðarpalli. Í öllum rýmum eru vönduð gólfefni, Quick-Step parket í alrýmum og flísar í votrýmum. Þú getur því flutt beint inn án mikillar fyrirhafnar.
Já, öll húsin eru hönnuð af Ívari Haukssyni byggingarverkfræðingi og eru byggð samkvæmt íslenskum byggingarstöðum og reglugerðum. Modular einingarnar eru framleiddar í verksmiðju Nordroof í Litháen en frágangur, samsetning og útfærsla er aðlöguð að íslenskum aðstæðum.
Burðarvirki húsana er timbur og klædd með viðarklæðningu. Þök á sumum húsum eru klædd sterkum málmplötum, en önnur hús eru með tvöföldum þakdúk. Báðar lausnir eru vandaðar og hannaðar til að standast íslenskar aðstæður. Gluggar og útihurðir eru úr ál-tré og sérstaklega hönnuð til að standast íslenskt veðurfar.
Já, gólfhiti er í öllum rýmum. Hann er tengdur við dreifigrind sem tryggir jafna og góða hitadreifingu
Húsin eru afhent með grófjöfnuðu bílaplani. Lagnaleið er lögð fyrir rafmagnshleðslu á bílastæði og fyrir heitan pott við húsið.
Lóðir eru seldar eða leigðar eftir stærð og staðsetningu. Kauplóðir eru verðlagðar á fermetra og við bætast hefðbundin gjöld (gatnagerð og tengigjöld fyrir heitt/kalt vatn). Leigulóðir eru einnig í boði með stofngjaldi og árlegri lóðaleigu.
Hafðu samband til að fá verð miðað við þær lóðir sem eru lausar í dag.
Já, bæði heitt og kalt vatn liggur að lóðarmörkum. Hitaveitan sér fyrir heitu vatni allt árið, og kalt vatn kemur frá neysluvatnskerfi svæðisins.
Já, sumarhúsafélag er starfandi á svæðinu sem sér m.a. um vegi, snjómokstur og sorphirðu. Þetta tryggir að þjónustan sé í lagi allt árið og að sameiginleg svæði séu vel hirt.
Það eru aðeins 14 mínútur að keyra á Laugarvatn þar sem er matvöruverslun, veitingastaðir og sundlaug. Um 20 mínútur eru á Flúðir þar sem er fjölbreytt þjónusta, og um klukkutími til Reykjavíkur. Svæðið er einnig í hjarta Gullna hringsins með nálægð við Geysi, Gullfoss, Þingvelli og Friðheima.
Já, hægt er að fjármagna kaupin með sumarhúsaláni hjá bönkum og fjármálastofnunum. Við getum leiðbeint með næstu skref ef þig langar að kanna möguleika á fjármögnun.