Ártún 30
Lóð: 6750 m²
Hús: 116 m²
Verð: 78.800.000 ISK *án lóðar
SKILALÝSING
18.05.2025 // útg. 01
Sumarhús Ártún 30 – A2
116 m²

SKILALÝSING
Ártún 30 – A2 Brúarárbyggð Reykjaskógi
1 – ALMENN LÝSING
Ártún 30 – A2 í Reykjaskógi Bláskógarbyggð er heilsárshús á einni hæð ásamt viðarpalli útfrá stofu, gangi og við aðalinngang.
Húsið er Íslensk hönnun teiknað af Ívari Haukssyni hjá Verkfræðistofu Ívars Hauks ehf, framleitt af O5 Fasteignafélagi ehf, Modular einingarnar koma frá verksmiðju Nordroof by Wineris í Litháen.
Allur frágangur er miðaður við íslenska staðla og íslenskar reglugerðir.
Húsið afhendist fullbúið að innan, með viðarklæðningu að utan og grófjöfnuðu bílaplani.
Húsinu er skilað fullbúnu með gólfefnum í öllum rýmum. Gólf blautrýma eru flísalögð og veggir baðherbergis flísalagðir. Önnur gólf innanhúss eru með vönduðu Quick-Step parketi.
Húsið er afhent að fullu tilbúið með innréttingum og helstu húsgögnum, tækjum í eldhúsi og þvottahúsi þ.m.t ofn, helluborð með innbyggðri viftu, ísskáp, uppþvottavél, vínkæli, þvottavél og þurrkara. Auka salerni er í þvottahúsi.
Byggingaraðili og seljandi er O5 Fasteignafélag ehf. kt. 660424-0750. Samstarfsaðili og stýriverktaki framkvæmda er Nordroof Ísland ehf kt. 610121-2250 bt, Alfreð Már Clausen.
2 – FRÁGANGUR UTANHÚSS
2.1 BURÐARVIRKI
Burðarvirki hússins er timbur.
2.2 FRÁGANGUR UTANHÚSS
Húsið er klætt að utan með grárri viðarklæðningu.
Viðarpallur er við aðalinngang, gang og útfrá stofu.
2.3 ÞAK
Á þaki er bræddur tvöfaldur sérstakur þakpappi, dökkgrár að lit. Þakrennur.
2.4 RAFLAGNIR OG RAFHLEÐSLA
Útiljós eru við innganga.
Lagnaleið fyrir rafmagnshleðslu út á bílastæði. (hleðslustöð fylgir ekki).
Lagnaðleið fyrir heitan pott við húsið.
2.6 GLUGGAR OG ÚTIHURÐIR
Gluggar/Útihurðar eru ál-tré gluggar/hurðir, dökkgrátt RAL 7016 að innan og utan.
2.7 LÓÐ
Húsið afhendist að fullu tilbúið með timburpalli og grófjöfnuðu bílaplani.
3 – FRÁGANGUR HÚSS
3.1 ALMENNT
Húsið er afhent fullbúið með gólfefnum, húsgögnum og innréttingum. Á öllum rýmum nema votrýmum er QuickStep parket á gólfum. Gólf og veggir á baðherbergi er flísalagt.
3.2 VEGGIR OG LOFT
Gifsklæddir 12.5mm veggir og loft.
Veggir og loft er málað í JOTUN 10341 kalk.
3.3 FLÍSAR OG GÓLFEFNI
Quick-Step parket og flísarnar eru sterkar steinflísar, stærð 60x60 cm.
3.4 INNRÉTTINGAR OG HÚSGÖGN
Í forstofu er fataskápur, bekkur og spegill.
Í þvottahúsi er innrétting, vaskur, þvottavél, þurrkari og salerni.
Í eldhúsi er graphite grá innrétting og viðarborðplata, ísskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn, innbyggð vifta í helluborði, og eyjan er ljós grá með vínkæli. Ljós fyrir ofan eyju.
Á baðherbergi er vönduð baðinnrétting, flísar á á gólfi og veggjum.
Salerni er vegghengt, sturta með steingólfi og glerþili.
Í hjónaherbergi eru vandaðir fataskápar, 160x200 rúm og upphengd náttborð.
Í barnaherbergi eru kojur.
Í herbergi inn af anddyri er 160x200 rúm og kommóða.
Í stofu er hilla, stóll, sófi og sófaborð, borðstofuborð og 6 stólar.
Misræmi getur verið milli söluteikninga, teikninga arkitekts og innréttingateikninga en þá eru það
innréttingateikningar sem gilda.
3.5 RAFMAGN
Raflögn er fullfrágengin. Rofar og tenglar (fyrir rafmagn, tölvu/síma og loftnet) verða settir upp í samræmi við raflagnateikningar. Ljós í eldhúsi, baði og í þvottahúsi eru frágengin.
3.6 HITALÖGN
Hitakerfi: Gólfhitalagnir, tengdar saman við tengigrind.
Seljandi greiðir inntaksgjöld fyrir rafmagn og hita
3.7 ELDVARNIR
Reykskynjarar og handslökkvitæki fylgir húsinu.
TIL ÁRÉTTINGAR
Skilalýsing þessi er hluti af kaupsamningi húss Ártún 30 – A2 Reykjaskógi.Bláskógarbyggð.
Vakin er athygli á því að O5 Fasteignafélag ehf. áskilur sér rétt til að gera útlits-, efnis- og tæknilegar breytingar á byggingartíma í samráði við hönnuði hússins og byggingaryfirvöld. Leitast verður við að halda a.m.k. sambærilegum gæðum byggingarhluta og íhluta, breytist þeir á byggingartíma. Vísað er til hönnunargagna, (t.a.m. aðaluppdráttur hönnuðar) varðandi nákvæmar útfærslur á atriðum sem ekki koma fram í skilalýsingunni.
Auglýsingarefni og annað myndefni er eingöngu til hliðsjónar og komi upp misræmi þá eru samþykktar teikningar hönnuða gildandi. Skil húss miðast við vandaðan frágang og viðurkennd skil á nýju íbúðarhúsnæði. Minniháttar misræmi getur verið á milli teikninga arkitekta, söluteikninga og sérteikninga innréttinga og eru innréttingateikningar þá gildandi. Í öllum tilvikum þar sem minnst er á tegundir af hinum ýmsu tækjum og innréttingum í skilalýsingu þessari er átt við þau tæki eða sambærileg á þeim tíma sem uppsetning á sér stað. Sama á við um birgja/efnissala. Seljandi áskilur sér rétt til breytinga þar á og verður þá miðað við sambærilega vöru.
Athugið að í nýjum húsum getur verið byggingaraki. Þessi raki mun að jafnaði hverfa á einu til tveimur árum en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni. Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (daggarmyndun) innan á gleri.
Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt glugga, gólfefni, málningu og spörstlun. Því er mikilvægt að hafa gluggafögin lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna. Þegar búið hefur verið í húsunum í u.þ.b. 2 ár má gera ráð fyrir að sprungumyndun í veggjum verði ekki meiri. Eðlilegt er að eigandi máli að nýju að þeim tíma liðnum. Húseigandi gæti þurft að hreinsa sigti á blöndunartækjum nokkrum sinnum eftir að flutt er inn í húsið og fylgjast með niðurföllum í þvottahúsi og baði. Nauðsynlegt er að smyrja lamir á opnanlegum fögum og svalahurðum svo þau festist ekki. Við afhendingu skal kaupandi skoða húsið ítarlega. Ef einhverjir ágallar finnast skal kaupandi, áður en hann hefur framkvæmdir í húsinu, afhenda fulltrúa seljanda
undirritað eyðublað þar sem þessir ágallar eru taldir upp. Varast ber að setja plastfilmu eða merkingu á gler eða setja gardínur þétt að gleri vegna rakamyndunar og sprunguhættu. Seljandi ber ekki ábyrgð á eðlilegri og venjulegri sprungumyndun í steypu og timbri og/eða atriðum sem heyra undir viðhald hússins og almenna umhirðu.
HÖNNUÐIR:
Aðalhönnuður:
Ívar Hauksson Byggingarverkfræðingur MSc
Burðarþols- og lagnahönnun: VIH ehf Verkfræðistofa
Brunahönnun og hljóðvist: VIH ehf Verkfræðistofa
BYGGINGARVERKTAKI:
O5 Fasteignir ehf
Verkefnastjóri: Alfreð Már Clausen
Byggingastjóri: Jóhannes Unnar Barkarsson byggingarfræðingur/múrarameistari
BYGGINGARAÐILI:
O5 Fasteignir ehf
Víkurhvarf 6
203 Kópavogur
SÖLUAÐILI:
Tinna Bryde
Háborg Fasteignasala ehf





