Til baka

Ártún 30

Lóð: 6750 m²

Hús: 116

Verð: 78.800.000 ISK *án lóðar

Staða: Fáanlegt

Lýsing eignar

Ártún 30 er 116,5 m² heilsárshús á einni hæð með viðarpalli og nútímalegri hönnun. Afhent er fullbúið með gólfefnum, innréttingum, tækjum og helstu húsgögnum – tilbúið til notkunar frá fyrsta degi.

Nánari lýsing

  • Forstofa: Rúmgóð forstofa með fataskápum og parketi á gólfi.
  • Þvottahús: Inn af forstofu, með innréttingu, vaski og auka salerni. Þvottavél og þurrkari fylgja.
  • Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi, öll með fataskápum og parketi. Eitt svefnherbergið er  16,8 m² og hentar því vel sem rúmgóð svíta eða gestaherbergi.
  • Stofa: Björt og opin stofa með útgengi á viðarpall, tengd eldhúsi í opnu rými.
  • Eldhús: Graphite grá innrétting með viðarborðplötu, ljós grá eyja með vínkæli og yfirhengdu ljósi. Vönduð tæki fylgja, m.a. ísskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn og helluborð með innbyggðri viftu.
  • Baðherbergi: Flísalagt á gólfum og veggjum. Vönduð innrétting, walk-in sturta með glerþili, upphengt salerni og steingólf.

Aðstaða og búnaður

  • Gólfhiti í öllum rýmum
  • Gluggar og hurðir úr ál-tré
  • Þak með sterkum tvöföldum þakpappa og þakrennum
  • Lagnaleið fyrir hleðslustöð á bílastæði (stöð fylgir ekki)
  • Lagnaleið fyrir heitan pott
  • Steyptur sökkull og grófjafnað bílaplan

Lóðin

Lóðin er 6.750 m² að stærð og staðsett í fallegu landi í Brúarárbyggð Reykjaskógi. Hún er afhent grófjöfnuð og með aðkomu að vatni og vegum við lóðamörk.

Á svæðinu gildir nýtingarhlutfall 0,03 og heimild er til að reisa aukahús/gestahús allt að 40 m² og geymslu allt að 15 m², sem telst með í heildarbyggingarmagni lóðarinnar.

Kostnaður við lóðir

  • Kauplóðir: frá 750 kr./m² auk gatnagerðargjalds og tengigjalda.
  • Leigulóðir: einnig í boði með stofngjaldi og árlegri lóðarleigu.

Nánari upplýsingar um kostnað og gjöld fást hjá söluaðila.