Öldutún 29
Lóð: 5610 m²
Hús: 79 m²
Verð: 59.900.000 ISK *án lóðar
SKILALÝSING
04.07.2025 // útg. 01
Öldutún 29 – B3
79,7 m²

SKILALÝSING
Öldutún 29 – B3 Brúarárbyggð
Reykjaskógi Bláskógabyggð
B3 hús verð er 59.500.000 ISK
1 – ALMENN LÝSING
Öldutún 29 – B3 í Reykjaskógi Bláskógarbyggð er heilsárshús á einni hæð ásamt viðarpalli við aðalinngang, útfrá svefngerbergi, baðherbergi og stofu.
Húsið er Íslensk hönnun teiknað af Ívari Haukssyni hjá Verkfræðistofu Ívars Hauks ehf, framleitt af O5 Fasteignafélagi ehf, Modular einingarnar koma frá verksmiðju Nordroof by Wineris í Litháen.
Allur frágangur er miðaður við íslenska staðla og íslenskar reglugerðir.
Húsið afhendist fullbúið að innan sem utan, með hvítri viðarklæðningu að utan og grófjöfnuðu bílaplani.
Húsinu er skilað fullbúnu með gólfefnum í öllum rýmum. Gólf blautrýma eru flísalögð og veggir baðherbergis með fibo plötum. Önnur gólf innanhúss eru með vönduðu Quick-Step parketi.
Húsið verður afhent að fullu tilbúið með innréttingum og helstu húsgögnum, tækjum í eldhúsi þ.m.t ofn, helluborð með innbyggðri viftu, ísskáp og uppþvottavél.
Byggingaraðili og seljandi er O5 Fasteignafélag ehf kt. 660424-0750 bt, Alfreð Már Clausen.
2 – FRÁGANGUR UTANHÚSS
2.1 BURÐARVIRKI
Burðarvirki hússins er timbur.
2.2 FRÁGANGUR UTANHÚSS
Húsið er klætt að utan með hvítri RAL 9016 viðarklæðningu.
Viðarpallur er við aðalinngang, útfrá svefngerbergi, baðherbergi og stofu.
2.3 ÞAK
Á þaki er Málmklæðning, dökkgrá að lit. Þakrennur.
2.4 RAFLAGNIR OG RAFHLEÐSLA
Útiljós eru við innganga.
Lagnaleið fyrir rafmagnshleðslu út á bílastæði. (hleðslustöð fylgir ekki).
Lagnaðleið fyrir heitan pott við húsið.
2.6 GLUGGAR OG ÚTIHURÐIR
Gluggar/Útihurðar eru ál-tré gluggar/hurðir, dökkgrátt RAL 7016 að utan, hvítt RAL 9010 að innan.
2.7 LÓÐ
Húsið afhendist að fullu tilbúið með timburpalli og grófjöfnuðu bílaplani.
3 – FRÁGANGUR INNANHÚSS
3.1 ALMENNT
Húsið er afhent fullbúið með gólfefnum, húsgögnum og innréttingum. Á öllum rýmum nema votrýmum er QuickStep parket á gólfum. Á baðherbergi er gólf flísalagt og veggir með fibó plötum.
3.2 VEGGIR OG LOFT
Gifsklæddir 12.5mm veggir og loft.
Veggir og loft er málað með JOTUN málningu.
Veggir á baðherbergi klæddir með fibo plötum, 2204 Cracked Cement.
3.3 FLÍSAR OG GÓLFEFNI
Quick-Step parket og flísarnar eru sterkar steinflísar, stærð 60x60 cm.
3.4 INNRÉTTINGAR OG HÚSGÖGN
Í forstofu er fataskápur.
Í eldhúsi er hvít fulninga innrétting RAL 9010 og ljós avant quartz borðplata, Electrolux ísskápur með frysti, Electrolux innbyggð uppþvottavél, Electrolux bakaraofn, Elica helluborð og innbyggð vifta í helluborði. Hvítt eldhúsborð og stólar.
Á baðherbergi er vönduð baðinnrétting, flísar á á gólfi og fíbó plötur á veggjum.
Salerni er vegghengt, sturta með steingólfi og glerþili.
Í aðalsvefnherbergi er vandaður fataskápar, 160x200 rúm og náttborð. Í gestaherbergi eru tvö 90x200 rúm og náttborð. Í barnaherbergi eru kojur og vandaður fataskápur.
Í stofu er málverk, kommóða, sófi og sófaborð.
Misræmi getur verið milli söluteikninga, teikninga arkitekts og innréttingateikninga en þá eru það
innréttingateikningar sem gilda.
3.5 RAFMAGN
Raflögn er fullfrágengin. Rofar og tenglar (fyrir rafmagn, tölvu/síma og loftnet) eru settir upp í samræmi við raflagnateikningar. Ljós í eldhúsi og baði eru frágengin.
3.6 HITALÖGN
Hitakerfi: Gólfhitalagnir, tengdar saman við tengigrind.
Seljandi greiðir inntaksgjöld fyrir rafmagn og hita
3.7 ELDVARNIR
Reykskynjarar og handslökkvitæki fylgir húsinu
TIL ÁRÉTTINGAR
Skilalýsing þessi er hluti af kaupsamningi húss Öldutún 29 – B3 Reykjaskógi Bláskógarbyggð.
Vakin er athygli á því að O5 Fasteignafélag ehf. áskilur sér rétt til að gera útlits-, efnis- og tæknilegar breytingar á byggingartíma í samráði við hönnuði hússins og byggingaryfirvöld. Leitast verður við að halda a.m.k. sambærilegum gæðum byggingarhluta og íhluta, breytist þeir á byggingartíma. Vísað er til hönnunargagna, (t.a.m. aðaluppdráttur hönnuðar) varðandi nákvæmar útfærslur á atriðum sem ekki koma fram í skilalýsingunni.
Auglýsingarefni og annað myndefni er eingöngu til hliðsjónar og komi upp misræmi þá eru samþykktar teikningar hönnuða gildandi. Skil húss miðast við vandaðan frágang og viðurkennd skil á nýju íbúðarhúsnæði. Minniháttar misræmi getur verið á milli teikninga arkitekta, söluteikninga og sérteikninga innréttinga og eru innréttingateikningar þá gildandi. Í öllum tilvikum þar sem minnst er á tegundir af hinum ýmsu tækjum og innréttingum í skilalýsingu þessari er átt við þau tæki eða sambærileg á þeim tíma sem uppsetning á sér stað. Sama á við um birgja/efnissala. Seljandi áskilur sér rétt til breytinga þar á og verður þá miðað við sambærilega vöru.
Athugið að í nýjum húsum getur verið byggingaraki. Þessi raki mun að jafnaði hverfa á einu til tveimur árum en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni. Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (daggarmyndun) innan á gleri.
Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt glugga, gólfefni, málningu og spörstlun. Því er mikilvægt að hafa gluggafögin lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna. Þegar búið hefur verið í húsunum í u.þ.b. 2 ár má gera ráð fyrir að sprungumyndun í veggjum verði ekki meiri. Eðlilegt er að eigandi máli að nýju að þeim tíma liðnum. Húseigandi gæti þurft að hreinsa sigti á blöndunartækjum nokkrum sinnum eftir að flutt er inn í húsið og fylgjast með niðurföllum í þvottahúsi og baði. Nauðsynlegt er að smyrja lamir á opnanlegum fögum og svalahurðum svo þau festist ekki. Við afhendingu skal kaupandi skoða húsið ítarlega. Ef einhverjir ágallar finnast skal kaupandi, áður en hann hefur framkvæmdir í húsinu, afhenda fulltrúa seljanda
undirritað eyðublað þar sem þessir ágallar eru taldir upp. Varast ber að setja plastfilmu eða merkingu á gler eða setja gardínur þétt að gleri vegna rakamyndunar og sprunguhættu. Seljandi ber ekki ábyrgð á eðlilegri og venjulegri sprungumyndun í steypu og timbri og/eða atriðum sem heyra undir viðhald hússins og almenna umhirðu.
HÖNNUÐIR:
Aðalhönnuður:
Ívar Hauksson Byggingaverkfræðingur MSc
Burðarþols- og lagnahönnun: VIH ehf Verkfræðistofa
Brunahönnun og hljóðvist: VIH ehf Verkfræðistofa
BYGGINGARVERKTAKI:
O5 Fasteignafélag ehf
Verkefnastjóri: Alfreð Már Clausen
Byggingastjóri: Jóhannes Unnar Barkarsson byggingafræðingur/múrarameistari
BYGGINGARAÐILI:
O5 Fasteignafélag ehf
Víkurhvarfi 6
203 Kópavogi
SÖLUAÐILI:
Tinna Bryde
Háborg Fasteignasala ehf








